Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, gerir sjö breytingar á byrjunarliði sínu sem mætir Ítalíu í vináttulandsleik í Flórens klukkan 14.
Þetta er annar leikur liðanna á fjórum dögum en fyrri leiknum síðasta laugardag lauk með 1:0-sigri ítalska liðsins.
Sandra Sigurðardóttir, Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, Sveindís Janes Jónsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir koma allar inn í liðið.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Guðrún Arnardóttir, Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Agla María Albertsdóttir, Hlín Eiríksdóttir og Elín Metta Jensen fá sér sæti á bekknum.
Byrjunarlið Íslands:
Markvörður: Sandra Sigurðardóttir
Varnarmenn: Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir.
Miðjumenn: Andrea Rán Hauksdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir.
Sóknarmenn: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir.