Atli Hrafn Andrason er genginn til liðs við ÍBV frá Breiðablik og spilar því með Eyjamönnum í 1. deild karla í fótboltanum í sumar.
Atli er 22 ára gamall kantmaður, uppalinn hjá KR og var um skeið í röðum enska félagsins Fulham. Hann lék fimm úrvalsdeildarleiki með KR-ingum á árunum 2015-16 en kom síðan til Víkinga frá Fulham og lék með þeim 2018-20. Þar spilaði hann 36 úrvalsdeildarleiki og skoraði tvö mörk.
Hann kom síðan til Breiðabliks frá Víkingi í ágúst á síðasta ári og lék fimm leiki með Kópavogsliðinu á lokaspretti Íslandsmótsins 2020 og skoraði eitt mark.
Þar með hefur ÍBV fengið þrjá leikmenn frá Breiðabliki í vor en áður sömdu Eyjamenn við Guðjón Pétur Lýðsson og fengu Stefán Inga Sigurðarson lánaðan.
Atli Hrafn til ÍBV https://t.co/eDDmLPrihg pic.twitter.com/6fiC8TAUs2
— ÍBV Vestmannaeyjar (@IBVsport) May 12, 2021