Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur valið þá 24 leikmenn sem mæta Færeyjum í vináttulandsleik í Þórshöfn hinn 4. júní.
Alls eru fjórir leikmenn í hópnum sem leika í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, en það eru þeir Brynjar Ingi Bjarnason, Gísli Eyjólfsson, Þórir Jóhann Helgason og Ísak Óli Ólafsson.
Patrik Sigurður Gunnarsson og Jón Guðni Fjóluson, sem voru með hópnum í Texas í Bandaríkjunum þegar Ísland mætti Mexíkó í vináttuleik, verða ekki með í Færeyjum vegna meiðsla.
Landsliðshópur Íslands:
Markmenn
- Elías Rafn Ólafsson - Fredericia
- Rúnar Alex Rúnarsson - Arsenal
- Ögmundur Kristinsson - Olympiacos
Varnarmenn
- Alfons Sampsted - Bodö Glimt
- Brynjar Ingi Bjarnason - KA
- Guðmundur Þórarinsson - New York City
- Hjörtur Hermannsson - Bröndby
- Ísak Óli Ólafsson - Keflavík
- Kolbeinn Þórðarson - Lommel
- Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken
Miðjumenn
- Andri Fannar Baldursson - Bologna
- Aron Einar Gunnarsson - Al-Arabi
- Aron Elís Þrándarson - OB
- Birkir Bjarnason - Brescia
- Gísli Eyjólfsson - Breiðablik
- Ísak Bergmann Jóhannesson - Norrköping
- Jón Dagur Þorsteinsson - AGF
- Mikael Neville Anderson - Midtjylland
- Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg
- Þórir Jóhann Helgason - FH
Sóknarmenn
- Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar
- Jón Daði Böðvarsson - Millwall
- Kolbeinn Sigþórsson - Göteborg
- Sveinn Aron Guðjohnsen - OB