FH jafnaði KR á stigum í 1. deild kvenna í fótbolta með 2:0-útisigri er liðin mættust í Frostaskjóli í kvöld.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom FH yfir á 26. mínútu og Sandra Nabweteme, lánskona frá Þór/KA, tryggði FH 2:0-sigur með marki á 59. mínútu.
Liðin eru nú bæði með 29 stig í tveimur efstu sætum deildarinnar en FH er fyrir ofan á markatölu.
Í Grindavík unnu heimakonur 1:0-sigur á Augnabliki í lykilleik í botnbaráttunni. Júlía Ruth Thasaphong skoraði sigurmarkið á 68. mínútu.
Grindavík er í sjötta sæti með 14 stig en Augnablik í botnsætinu með aðeins átta stig.