Stjórn KSÍ segir af sér

Stjórn KSÍ hefur ákeðið að segja af sér.
Stjórn KSÍ hefur ákeðið að segja af sér. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sitjandi stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, hefur ákveðið að segja af sér. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Knattspyrnusambandið sendi frá sér í kvöld.

Þá hefur verið boðað til aukaþings í samræmi við 13. grein laga KSÍ með fjögurra vikna fyrirvara þar sem ný stjórn verður kjörin.

„Stjórn, varafulltrúar og landshlutafulltrúar hafa ákveðið að segja af sér og munu skila umboði sínu eigi síðar en þegar til aukaþingsins kemur,“ segir meðal annars í fréttatilkynningunni.

„Þessi niðurstaða er í samræmi við áskoranir Íslensks Toppfótbolta, óskir fulltrúa félaga sem sent hafa áskorun um aukaþing og þrýsting frá samfélaginu,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Yfirlýsing stjórnar KSÍ:

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 30. ágúst að boða með fjögurra vikna fyrirvara til aukaþings í samræmi við 13. grein laga KSÍ. Fundarboð með upplýsingum um þingdag, dagskrá og fyrirkomulag þingsins verða sendar aðildarfélögum á næstu dögum. 

Stjórnin vill af þessu tilefni koma eftirfarandi á framfæri:

  1. Vinnu faghóps um endurskoðun viðbragða við kynferðisbrotum og ofbeldi innan hreyfingarinnar og hvernig staðið var og verður að stuðningi við þolendur verður áfram í forgangi.
  2. Stjórn, varafulltrúar og landshlutafulltrúar hafa ákveðið að segja af sér og munu skila umboði sínu eigi síðar en þegar til aukaþingsins kemur.
  3. Þessi niðurstaða er í samræmi við áskoranir Íslensks Toppfótbolta, óskir fulltrúa félaga sem sent hafa áskorun um aukaþing og þrýsting frá samfélaginu.
  4. Stjórnin hefur fundað með forseta ÍSÍ um framgang málsins og um það hvernig best verður haldið um starfsemi KSÍ fram að aukaþingi svo starfsemin haldist órofin.
  5. Fundað verður með fulltrúum UEFA og FIFA um stöðu málsins og fyrirhuguð stjórnarskipti þannig að ekki þurfi að koma til afskipta knattspyrnusambandanna að starfsemi sambandsins
  6. Ásgeir Ásgeirsson hefur tilkynnt að hann segi sig hér með frá trúnaðarstörfum fyrir KSÍ.

Stjórnin færir starfsfólki KSÍ og sjálfboðaliðum í hreyfingunni bestu kveðjur og þakkir fyrir frábært samstarf og hvetur það til að vinna áfram af trúmennsku og dugnaði í þágu íslenskrar knattspyrnu.

Stjórn KSÍ.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka