Þorsteinn Halldórsson þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu hefur tilkynnt hvaða leikmenn muni taka þátt í leik gegn Evrópumeisturum Hollands í undankeppni HM 2023. Ungstirnið Amanda Andradóttir er valin í hópinn í fyrsta sinn.
Amanda var á dögunum valin í norska U19-ára landsliðið en hefur nú þekkst boð um að taka þátt í komandi verkefni gegn Hollandi, en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli þann 21. september næstkomandi.
Fjórar breytingar eru á landsliðshópnum frá síðasta verkefni. Sif Atladóttir snýr aftur í hópinn og Hlín Eiríksdóttir og Guðrún Arnardóttir koma einnig inn auk Amöndu.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir, Kristín Dís Árnadóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir detta út úr hópnum.
Hópurinn í heild sinni:
Sandra Sigurðardóttir - Valur - 36 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - KIF Örebro - 3 leikir
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving - ÍBV
Elísa Viðarsdóttir - Valur - 40 leikir
Guðný Árnadóttir - AC Milan - 10 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 93 leikir, 6 mörk
Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga - 37 leikir
Guðrún Arnardóttir - Rosengard - 11 leikir
Sif Atladóttir - Kristianstads DFF - 82 leikir
Hallbera Guðný Gísladóttir - AIK - 119 leikir, 3 mörk
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir - Breiðablik - 5 leikir
Andrea Rán Hauksdóttir - Houston Dash - 12 leikir, 2 mörk
Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 92 leikir, 30 mörk
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Orlando Pride - 80 leikir, 11 mörk
Alexandra Jóhannsdóttir - Eintracht Frankfurt - 14 leikir, 2 mörk
Karitas Tómasdóttir - Breiðablik - 4 leikir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayern Munich - 8 leikir, 3 mörk
Amanda Andradóttir - Valerenga
Berglind Björg Þorvaldsdóttir - Hammarby - 52 leikir, 7 mörk
Elín Metta Jensen - Valur - 58 leikir, 16 mörk
Agla María Albertsdóttir - Breiðablik - 37 leikir, 3 mörk
Sveindís Jane Jónsdóttir - Kristianstads DFF - 8 leikir, 2 mörk
Hlín Eiríksdóttir - Pitea IF - 19 leikir, 3 mörk