Elías Rafn Ólafsson markvörður Midtjylland í Danmörku leikur sinn fyrsta A-landsleik í knattspyrnu þegar Ísland tekur á móti Armeníu á Laugardalsvelli í J-riðli undankeppni HM 2023 í kvöld.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska liðsins, tilkynnti byrjunarlið sitt núna rétt í þessu en Brynjar Ingi Bjarnason og Hjörtur Hermannsson eru miðverðir.
Birkir Már Sævarsson, sem leikur sinn 102 A-landsleik, og Ari Freyr Skúlason eru bakverðir með þá Birki Bjarnason, Guðlaug Victor Pálsson og Þóri Jóhann Helgason fyrir framan sig en Birkir Bjarna er einnig að leika sinn 102 A-landsleik.
Þá eru þeir Albert Guðmundsson, Viðar Örn Kjartansson og Jón Dagur Þorsteinsson sóknarmenn.
Byrjunarlið Íslands:
Elías Rafn Ólafsson
Birkir Már Sævarsson
Hjörtur Hermannsson
Brynjar Ingi Bjarnason
Ari Frey Skúlason
Þórir Jóhann Helgason
Guðlaugur Victor Pálsson
Birkir Bjarnason
Jón Dagur Þorsteinsson
Viðar Örn Kjartansson
Albert Guðmundsson