Elín Metta Jensen, miðherji Íslandsmeistara Vals, verður ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem mætir Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM.
Elín Metta dró sig út úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari hefur valið Selmu Sól Magnúsdóttur úr Breiðabliki í stað Elínar.
Ísland mætir Tékklandi á föstudag og Kýpur á þriðjudag en báðir leikirnir verða á Laugardalsvelli.
Elín Metta Jensen hefur vegna meiðsla þurft að draga sig út úr hóp A kvenna fyrir leikina gegn Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM 2023.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 18, 2021
Í hennar stað kemur Selma Sól Magnúsdóttir, Breiðablik, inn í hópinn.#alltundir #dottir