Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur framlengt samning sinn við kvennalið Þróttar í knattspyrnu. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær.
Markvörðurinn var afar öflug í liði Þróttara á síðustu leiktíð þegar liðið hafnaði í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar og tapaði fyrir Breiðabliki í úrslitaleik bikarkeppninnar á Laugardalsvelli.
„Okkar frábæri markmaður skrifaði undir framlengingu á samning um 1 ár,“ segir í tilkynningu Þróttara.
„Hún átti frábært tímabil og er mikilvægur hlekkur í sterku liði Þróttar. Við hlökkum til að sjá hana á næsta tímabili,“ segir ennfremur í tilkynningunni.
Íris hefur einnig leikið með uppeldisfélagi sínu Fylki, KR, FH, Haukum, Gróttu, Aftureldingu og Breiðabliki á ferlinum en alls á hún að baki 104 leiki í efstu deild.