Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu dróst í D-riðil með Frakklandi, Ítalíu og Belgíu á Evrópumótinu sem fer fram næsta sumar á Englandi.
Fyrsti leikur Íslands verður gegn Belgíu á æfingavelli Manchester City þar í borg.
Annar leikur Íslands verður gegn Ítalíu í Rotherham og þriðji leikur riðilsins verður gegn Frakklandi, einnig í Rotherham.
Fylgst var með drættinum í beinni textalýsingu hér að neðan.
Drátturinn í heild sinni:
A-riðill: England, Noregur, Austurríki, Norður-Írland
B-riðill: Þýskaland, Spánn, Danmörk, Finnland
C-riðill: Holland, Svíþjóð, Sviss, Rússland
D-riðill: Frakkland, Ítalía, Belgía, Ísland
Dregið í riðla fyrir lokakeppni EM | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 16:46 Textalýsing Mbl.is þakkar samfylgdina. | |||
Augnablik — sæki gögn... |