Knattspyrnukonurnar Olga Sevcova og Viktorija Zaicikova hafa framlengt samning sinn við ÍBV. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag.
Olga hefur leikið með ÍBV frá árinu 2020 og á að baki 31 leik í efstu deild með liðinu þar sem hún hefur skorað níu mörk.
Viktorija gekk til liðs við ÍBV fyrir síðasta tímabil en hún skoraði sjö mörk í 18 leikjum með liðinu í úrvalsdeildinni í sumar.
„Fréttirnar eru mikið gleðiefni fyrir félagið en leikmennirnir sem eru báðir frá Lettlandi hafa leikið vel með félaginu,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu Eyjamanna.
ÍBV hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð með 22 stig.