Sif samdi við Selfyssinga

Sif Atladóttir leikur með Selfyssingum á næsta keppnistímabili.
Sif Atladóttir leikur með Selfyssingum á næsta keppnistímabili. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sif Atladóttir, landsliðskona og ein reyndasta knattspyrnukona landsins, er gengin til liðs við Selfyssinga og leikur með þeim á næsta keppnistímabili en samningur hennar er til eins árs.

Sif, sem er 36 ára gömul, snýr heim eftir rúm tólf ár í atvinnumennsku þar sem hún lék fyrst hálft annað ár með Saarbrücken í Þýskalandi en síðan í ellefu ár með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni.

Hún lék áður með FH, KR, Þrótti og Val og spilaði þá 87 úrvalsdeildarleiki og skoraði 23 mörk, auk þess að skora 12 mörk í 13 leikjum fyrir Þrótt í 1. deildinni.

Sif lék 30 leiki í efstu deild Þýskalands með Saarbrücken og skoraði 3 mörk. Með Kristianstad lék hún 183 úrvalsdeildarleiki og skoraði tvö mörk en hún setti á þessu ári leikjamet Íslendings í sænsku deildinni. Þar sló hún met Erlu Steinu Arnardóttur sem lék 171 leik í deildinni.

Samtals hefur Sif spilað 325 deildaleiki á ferlinum og er þriðja leikjahæsta íslenska konan frá upphafi á eftir Katrínu Jónsdóttur og Hólmfríði Magnúsdóttur. Þrátt fyrir það hefur hún tvívegis tekið sér hlé vegna barneigna og lék m.a. ekkert á árinu 2020 af þeirri ástæðu. Hún var hinsvegar klár í slaginn með Kristianstad í byrjun þessa tímabils og spilaði 20 af 22 leikjum liðsins í úrvalsdeildinni á árinu.

Sif hefur leikið með íslenska landsliðinu frá árinu 2007 og lék sinn 84. landsleik gegn Japan í síðasta mánuði. Hún lék með liðinu á EM 2009 í Finnlandi, á EM 2013 í Svíþjóð og EM 2017 í Frakklandi, og stefnir á að vera í íslenska landsliðinu sem leikur á EM á Englandi næsta sumar.

Eiginmaður Sifjar, Björn Sigurbjörnsson, sem hefur verið aðstoðarþjálfari Kristianstad um árabil, var í haust ráðinn þjálfari Selfyssinga til næstu þriggja ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert