Oliver Stefánsson, varnarmaður sænska knattspyrnufélagsins Norrköping, er að ganga til liðs við uppeldisfélag ÍA á nýjan leik. Það er 433.is sem greinir frá þessu.
Oliver, sem er 19 ára gamall, fékk blóðtappa fyrir neðan háls í maí en hann hefur verið afar óheppinn með meiðsli síðan hann gekk til liðs við Norrköping frá ÍA árið 2018.
Varnarmaðurinn mun að öllum líkindum leika með Skagamönnum í efstu deild næsta sumar á láni frá Norrköping en hann mun byrja að æfa með liðinu strax eftir áramót.
„Hann er að koma til baka og byrjar að æfa með okkur eftir áramót,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA, í samtali við 433.is.
„Þetta snýst um það að geta hjálpað honum að komast í stand til að spila fótbolta,“ bætti Jóhannes við.