Hlynur Atli Magnússon hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fram til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag.
Varnarmaðurinn, sem er 31 árs gamall, er uppalinn í Safamýrinni og á að baki 219 fyrir félagið í öllum keppnum.
Hann hefur einnig leikið með Þór frá Akureyri á ferlinum og Florö í Noregi. Hann á að baki 88 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað fjögur mörk.
„Knattspyrnudeild Fram fagnar því að Hlynur Atli spili með uppeldisfélagi sínu í deild hinna bestu á nýjum og glæsilegum velli í Úlfarsárdal næstu tvö árin hið minnsta,“ segir í tilkynningu Framara.