Íslandsmeistararnir staðfesta komu Svíans

Arnar Gunnlaugsson, Oliver Ekroth og Kári Árnason við undirskrift Svíans …
Arnar Gunnlaugsson, Oliver Ekroth og Kári Árnason við undirskrift Svíans í dag. mbl.is/Kris

Sænski knattspyrnumaðurinn Oliver Ekroth er genginn til liðs við Íslands- og bikarmeistara Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu.

Ekroth, sem er 30 ára gamall, var kynntur til leiks hjá félaginu á blaðamannafundi í Víkinni í Fossvogi í hádeginu í dag.

Miðvörðurinn skrifaði undir eins árs samning við Víkinga með möguleika á árs framlengingu en hann kemur til félagsins frá Degerfors.

Þá hefur hann einnig leikið með Vä­sterås og Kristianstad á ferl­in­um en hann var fyrirliði Degerfors á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert