Deildum fjölgað sumarið 2023

Deildum Íslandsmótsins karla megin verður fjölgað árið 2023.
Deildum Íslandsmótsins karla megin verður fjölgað árið 2023. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tillaga til lagabreytingar á grein 33 í lögum KSÍ um knattspyrnumót var samþykkt á ársþingi KSÍ í Ólafssal á Ásvöllum í dag.

Þetta þýðir að sumarið 2023 fjölgar deildum í meistaraflokki karla úr fimm í sjö og mun neðsta deildin verða nokkurs konar utandeild.

Árborg lagði til breytingatillögu á lagabreytingunni þess efnis að hún ætti að taka gildi strax fyrir sumarið 2022. Þeirri breytingatillögu var hafnað með miklum meiri hluta en uppahflega tillagan var hins vegar samþykkt með miklum meiri hluta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert