Árni Freyr tekinn við ÍR

Árni Freyr Guðnason, fyrir miðju, er nýr þjálfari karlaliðs ÍR …
Árni Freyr Guðnason, fyrir miðju, er nýr þjálfari karlaliðs ÍR í knattspyrnu. Ljósmynd/ÍR

Knattspyrnudeild ÍR hefur ráðið Árna Frey Guðnason sem nýjan þjálfara karlaliðsins.

Arnar Hallsson lét af störfum sem þjálfari ÍR fyrir tæplega tveimur vikum síðan og síðan þá hefur Eyjólfur Héðinsson, leikmaður liðsins, stýrt því til bráðabirgða.

Árni Freyr, sem er 36 ára gamall, þekkir vel til í Breiðholtinu eftir að hafa leikið með liðinu við góðan orðstír frá árinu 2008 til 2011.

Undanfarin ár hefur hann verið yfirþjálfari yngri flokka hjá uppeldisfélagi sínu, FH, en þjálfar nú meistaraflokkslið í fyrsta skipti.

ÍR er sem stendur í sjötta sæti 2. deildar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert