Leik Kormáks/Hvatar gegn Dalvík/Reyni, sem átti að fara fram á Blönduósvelli annað kvöld, hefur verið frestað vegna skotárásarinnar á Blönduósi í gær, sem dró tvo til dauða auk þess sem einn er lífshættulega særður.
Samfélagið á Blönduósi á um sárt að binda um þessar mundir vegna harmleiksins og því ekki ofarlega í huga fólks að taka þátt og/eða bera íþróttakappleiki auga.
Kormákur/Hvöt er sameiginlegt lið bæjarliða Hvammstanga og Blönduóss.
Dalvík/Reynir, sameiginlegt lið bæjarliða Dalvíkur og Árskógsstrandar, vakti athygli á frestuninni á twitteraðgangi liðsins og sendi íbúum Blönduóss kæra kveðju:
Leik okkar og Kormáks/Hvöt sem átti að fara fram á morgun þriðjudag hefur verið frestað. Við sendum hlýja strauma til vina okkar á Blönduósi á þessum erfiðu tímum💙🤍
— Dalvík/Reynir (@dalvik_reynir) August 22, 2022