Stjarnan er komin upp í þriðja sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta á nýjan leik eftir afar sannfærandi 7:1-heimasigur á Aftureldingu í Garðabænum í kvöld.
Afturelding byrjaði þó betur því Eyrún Vala Harðardóttir kom gestunum yfir strax á 5. mínútu. Eftir það tók Stjarnan hinsvegar öll völd á vellinum.
Heimakonur sköpuðu sér hvert færið á fætur öðru en Eva Ýr Helgadóttir varði nokkrum sinnum stórglæsilega í marki Aftureldingar. Besta varslan kom á 26. mínútu er hún varði víti frá Jasmín Erlu Ingadóttur.
Jöfnunarmarkið kom þó loks á 35. mínútu og þar var að verki Jasmín Erla. Hún slapp þá í gegn, Eva varði frá henni en Jasmin fékk boltann aftur og skoraði í nánast autt mark, 1:1.
Tæpum tíu mínútum síðar komst Stjarnan yfir þegar Atli Haukur Arnarsson, dómari leiksins, dæmdi ódýra vítaspyrnu á Veronicu Boix, sóknarmann Stjörnunnar. Í þetta skipti fór Gyða Kristín Gunnarsdóttir á punktinn og skoraði af öryggi.
Aðeins mínútu síðar var staðan orðin 3:1. Jasmín Erla slapp þá í gegn eftir sendingu frá Ingibjörgu Luciu Ragnarsdóttur og skoraði af öryggi. Var Stjarnan því tveimur mörkum yfir í hálfleik.
Sá munur breyttist í þrjú mörk á 60. mínútu þegar Betsy Hassett skoraði glæsilegt mark. Sú ástralska sólaði þá nánast allt lið Aftureldingar og skoraði með góðu skoti í fjærstöngina. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Gyða Kristín sitt annað mark og fimmta mark Stjörnunnar með fallegu skoti í stöng og inn, utan teigs.
Sjötta markið kom á 68. mínútu og það gerði varnarmaðurinn Málfríður Erna Sigurðardóttir með skoti af stuttu færi eftir horn. Jasmín Erla Ingadóttir fullkomnaði svo þrennu sína með sjöunda markinu á 85. mínútu með góðri afgreiðslu í teignum og þar við sat.