Vorum ólíkir sjálfum okkur

Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, var svekktur eftir 1:1-jafntefli gegn Fram á Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld.

„Við vorum ólíkir sjálfum okkur í dag. Við spiluðum ekki góðan leik og vorum svolítið að reyna að halda fengnum hlut í seinni hálfleik. Við fengum það svo í andlitið en rifum okkur aðeins í gang eftir það en það var bara of seint.

Við vorum ekki jafn hreyfanlegir og vanalega. Það var bara eins og þetta væri einhver „off“ dagur hjá okkur. Framarar voru bara flottir, gerðu það sem þeir gera vel sem er að halda boltanum niðri og gera þetta erfitt fyrir andstæðinginn. Maður er svekktur að við náðum ekki að sýna okkar rétta andlit.“

Fram jafnaði metin þegar skammt var til leiksloka. Fannst Hólmari jöfnunarmarkið verðskuldað?

„Þeir voru búnir að vera sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Við vörðumst svo sem ágætlega þrátt fyrir að hafa ekki verið að eiga okkar besta dag. Þeir fengu ekki mikið af opnum færum og við fengum mögulega fleiri opin færi en spilamennskan úti á velli var eitthvað sem við viljum gera betur. “

Varnarleikur Vals leit ekki vel út í jöfnunarmarki Fram. Hvað var það sem klikkaði að mati Hólmars?

„Ég veit það ekki. Frá mínu sjónarhorni sýndist mér hann vera langt fyrir innan mig allavega, ég sá ekki hvað var í gangi bakvið mig. Það er eitthvað sem við þurfum að skoða bara og munum gera það.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert