Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnir leikmannahóp sinn fyrir umspilið fyrir HM 2023 á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal klukkan 13.15.
Ísland mætir annað hvort Portúgal eða Belgíu 11. október á útivelli en endanlegir mótherjar munu liggja fyrir hinn 6. október þegar Portúgal og Belgía mætast í undanúrslitum umspilsins í Caldas de Vizela í Portúgal.
Mbl.is er í Laugardalnum og færir ykkur allt það helsta af blaðamannafundinum í beinni textalýsingu.
Blaðamannafundur Íslands | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 13:31 Textalýsing Þá er fundi slitið. Viðtal við landsliðsþjálfarann mun birtast á mbl.is síðar í dag. | |||
Augnablik — sæki gögn... |