Tímamismunurinn má aldrei vera afsökun

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari.
Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari. Ljósmynd/Alex Nicodim

„Við búumst við mjög erfiðum leik. Við vitum að hópurinn sem þeir eru að vinna með akkúrat núna, 27-manna hópur, er að mestu leyti skipaður leikmönnum sem munu fara á HM,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, fyrir vináttulandsleik gegn Suður-Kóreu á morgun.

„Það vantar kannski 5-7 leikmenn sem eru að spila núna í Evrópu, á Englandi, Þýskalandi og á Ítalíu Þeir eru með feikisterkt lið, eins og við sáum og fengum að kynnast í janúar. Við búumst við leik á móti liði sem er mjög vel drillað, mjög gott pressulið.

Þeirra DNA er þannig að þeir eru rosalega duglegir, rosalega góðir og fljótir að setja pressu. Að mínu mati er þetta eitt af tíu bestu pressuliðum í heiminum í dag,“ bætti Arnar Þór við í samtali við KSÍ TV.

Gott tækifæri fyrir okkur

Þetta er í annað skiptið sem Ísland mætir Suður-Kóreu í vináttuleik á árinu en íslenska liðið tapaði 1:5 fyrir því suður-kóreska í janúar síðastliðnum.

„Ég býst kannski við Suður-Kóreumönnunum í aðeins öðruvísi uppstillingu en þá. Þeir voru að spila með einn framherja, eða 4-1-4-1, í janúar. Við búumst við þeim núna í 4-4-1-1 þannig að þeirra leikkerfi hefur aðeins breyst núna þegar liðið hefur á árið.

Að öðru leyti býst ég við svipuðum leik. Það við viljum gera er að læra af leiknum í janúar og bæta okkur. Margir leikmenn sem voru með okkur í janúar eru með okkur akkúrat núna.

Þetta er í raun mjög gott tækifæri fyrir okkur sem lið til að sjá hvort við séum ekki búnir að bæta okkur á þessum mánuðum síðan sá leikur fór fram. Ég trúi því líka að leikmenn okkar séu í betra líkamlegu standi núna heldur en þeir voru í janúar þegar undirbúningstímabilið var að byrja á Íslandi,“ sagði hann.

Vitum að þetta getur verið strembið

Arnar Þór var spurður hvort hann teldi að ferðalagið og tímamismunurinn myndi hafa einhver áhrif á íslenska liðið á morgun. 

„Við vonum ekki, við vitum að þetta getur verið strembið. Það er níu klukkutíma mismunur á Íslandi. Við tókum þetta stopp í Abú Dabí þannig að við vonumst til þess að við höfum haft nógan tíma þar til þess að aðlagast aðstæðum þessa þrjá daga sem við höfum í Seúl.“

Það má aldrei vera nein afsökun. Þetta er bara hluti af þessu landsliðsumhverfi og þegar við erum að fara í stóra leiki eða stór verkefni getur það verið hluti af því að fara í aðra heimsálfu. Það er bara hluti af þessu verkefni í heild sinni,“ sagði hann.

Gerum einhverjar breytingar

Loks var Arnar Þór spurður hvernig íslensku liði mætta eiga von á í leiknum á morgun, sem hefst klukkan 11 að íslenskum tíma.

„Við munum gera einhverjar breytingar. Það var valinn 23-manna hópur í þetta verkefni og við reynum að láta sem flesta leikmenn fá sem flestar mínútur þegar við erum að ferðast með svo marga leikmenn í aðra heimsálfu.

Það er hluti af þessu líka. Við gerum einhverjar breytingar og þær eru byggðar á því að lið Suður-Kóreu er sterkara en síðasti andstæðingur.

Við munum kannski vera aðeins varnarsinnaðri og kannski með aðeins fleiri leikmenn sem við teljum að séu með aðeins betri hlaupagetu í þessum varnarhlutverkum. Það er kannski svona stærsti munurinn á síðasta leik. sagði Arnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert