Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson hefur dregið sigur úr landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki gegn Bosníu og Liechtenstein í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu.
Elías, sem er leikmaður Midtjylland í Danmörku, fékk höfuðhögg á æfingu og mun ekki geta tekið þátt í leikjunum tveimur sem fram undan eru.
Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður Elfsborg í Svíþjóð, hefur verið kallaður inn í hópinn í stað Elíasar. Hákon er á 22. aldursári og á að baki fjóra leiki fyrir A-landsliðið.
Breyting á leikmannahópi A karla.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) March 21, 2023
Út: Elías Rafn Ólafsson (meiðsli).
Inn: Hákon Rafn Valdimarsson.#afturáEM pic.twitter.com/Y0YtzIJCGK