Englendingurinn Tony Knapp, fyrrverandi þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og karlaliðs KR, er látinn, 86 ára að aldri. Hann féll friðsamlega frá í svefni í nótt.
Knapp lék sem atvinnumaður hjá Leicester City, Southampton og Coventry City í heimalandinu um langt skeið áður en hann sneri sér að þjálfun að loknum leikmannaferlinum.
Eftir að hafa verið spilandi þjálfari hjá Poole Town í utandeild Englands í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar söðlaði Knapp um og tók bæði við íslenska landsliðinu og KR árið 1974.
KR stýrði hann í tvö tímabil en íslenska landsliðinu stýrði hann árin 1974 til 1977. Sigur Íslands á firnasterku liði Austur-Þýskalands, 2:1, undir hans stjórn sumarið 1975 hefur lengi verið í minnum hafður.
Knapp tók svo aftur við landsliðinu og stýrði því frá 1984 til 1985. Í millitíðinni stýrði hann meðal annars Viking frá Stafangri í Noregi og er hans minnst sem goðsagnar hjá félaginu eftir að liðið vann tvöfalt, deild og bikar, undir hans stjórn árið 1979.
Stærstum hluta þjálfaraferilsins varði Knapp í Noregi enda settist hann þar að. Þjálfaði hann meðal annars Brann, Fredrikstad og Sandnes Ulf auk áðurnefnds Vikings.