„Stærsti munurinn á liðinu frá því í fyrra er sá að miðvörðurinn Bruno Soares er farinn,“ sagði Víðir Sigurðsson, fréttastjóri íþróttadeildar mbl.is og Árvakurs, í upphitunarþætti Dagmála fyrir Bestu deild karla í knattspyrnu þegar rætt var um HK.
Nýliðum HK er spáð 12. og neðsta sæti deildarinnar í ár í spá íþróttadeildar Árvakurs en liðið hafnaði í 2. sæti 1. deildarinnar á síðustu leiktíð.
„Ég held að HK sé fyrst og fremst með það markmiði að halda sæti sínu í deildinni og er það eina raunhæfa markmiðið,“ sagði Víðir meðal annars.