Åge Hareide ráðinn þjálfari karlalandsliðsins

Åge Hareide er tekinn við íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu.
Åge Hareide er tekinn við íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu. AFP

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur ráðið Norðmanninn Åge Hareide sem nýjan þjálfara karlalandsliðsins.

Hareide er knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnur og á að baki langan og árangursríkan feril sem þjálfari nokkurra af stærstu félagsliðum Norðurlanda, auk þess að hafa þjálfað landslið Noregs og Danmerkur um árabil við góðan orðstír.

Hareide var við stjórnvölinn hjá norska landsliðinu árin 2003 til 2008 og stýrði landsliði Danmerkur árin 2016 til 2020.

Fyrstu leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Hareide verða tveir heimaleikir í undankeppni EM 2024 í júní, gegn Slóvakíu og Portúgal.

„Åge Hareide er gríðarlega reynslumikill þjálfari sem veit hvað þarf til að ná árangri. Leitin og ráðningaferlið allt gekk tiltölulega hratt fyrir sig enda höfðum við ákveðnar hugmyndir um þann prófíl sem við vildum fá í starfið.

Ég er mjög sátt við ráðninguna og bind miklar vonir við góðan árangur A landsliðs karla undir stjórn Åge,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, í tilkynningu frá sambandinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert