Þó Kaplakrikavöllur sé ekki nothæfur sem stendur er grasvöllurinn við frjálsíþróttavöllinn í Kaplakrika litlu skárri.
Þrátt fyrir það stendur nú yfir viðureign FH og Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem Óttar Geirsson, ljósmyndari mbl.is, smellti af í dag, er völlurinn ekki upp á marga fiska.