Félög boðuð í upptökur fyrir mistök

Mist Edvardsdóttir, Anna María Baldursdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir og Jasmín Erla …
Mist Edvardsdóttir, Anna María Baldursdóttir, Katrín Ásbjörnsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir í leik Vals og Stjörnunnar á síðasta tímabili. mbl.is/Hákon Pálsson

Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök liða í efstu tveimur deildum karla og kvenna í knattspyrnu, hafa sent frá sér tilkynningu vegna yfirlýsingar fyrirliða liðanna tíu í Bestu deild kvenna sem birtist í gær.

Í yfirlýsingu fyrirliðanna kom meðal annars fram að leikmenn liðanna hygðust ekki mæta á mánudaginn til ÍTF þar sem áætlað var að taka upp markaðsefni fyrir komandi tímabil.

Ætlunin var að upptökurnar færu fram á sama tíma og leikur Vals og Stjörnunnar í Meistarakeppni KSÍ annað kvöld.

Í tilkynningu ÍTF segir meðal annars að leikmenn liðanna hafi fyrir mistök verið boðaðir á sama tíma og leikurinn fer fram.

Tilkynning frá Íslenskum toppfótbolta vegna framleiðslu á markaðsefni fyrir Bestu deildina:

„Vegna yfirlýsingar fyrirliða í Bestu deild kvenna vill ÍTF koma eftirfarandi á framfæri. Upptökur sem voru boðaðar á mánudaginn kl. 18:00–20:00 eru mikilvægur liður í gerð markaðsefnis fyrir komandi tímabil í deildinni.

Umrætt fundarboð var sent á forsvarsmenn aðildarfélaga að morgni föstudags. Fram kom að tímasetningin hentaði ekki öllum félögum enda upptökur fyrir mistök boðaðar ofan í mikilvægan leik Vals og Stjörnunnar.

Við þessum árekstri var hins vegar brugðist strax með því að bjóða upp á annan tíma á öðrum degi. ÍTF hefur boðað forsvarsmenn félaga í Bestu deild kvenna á fund á morgun, mánudag til að ræða þau málefni sem varða deildina og komandi keppnistímabil.

Það er okkar von að hentugur tími finnist sem allra fyrst svo að klára megi upptökur og sátt náist um að vinna uppbyggilega saman að árangursríku og skemmtilegu knattspyrnutímabili.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert