Karlalið KA í knattspyrnu mun þurfa að leika heimaleik sinn í undankeppni Sambandsdeildar UEFA í sumar á Framvelli í Úlfarsárdal, þar sem heimavöllur KA uppfyllir sem stendur ekki kröfur UEFA um leiki af stærðargráðu slíkra leikja.
Á heimasíðu KA er greint frá því að nú standi yfir framkvæmdir á vegum Akureyrarbæjar við gerð nýs keppnisvallar, yfirbyggðrar stúku og félagsaðstöðu á KA svæðinu, og að þessi þessi nýju mannvirki muni uppfylla fyrrgreindar kröfur.
Þar til hinn nýi völlur verði tilbúinn hafi KA þó þurft að finna löglegan völl til þess að leika heimaleiki sína í keppninni.
„Við höfum átt í viðræðum við nokkur lið um að fá að nýta heimavelli þeirra fyrir leik okkar í Evrópukeppninni í sumar. Það hafa í raun ekki margir vellir komið til greina.
Okkur hefur sérstaklega verið litið til gervigrasvalla þar sem erfiðara er að bæta miklu aukaálagi á grasvelli sem nú þegar eru uppteknir fyrir leiki sumarsins.
Samkomulag er nú í höfn um að við spilum heimaleik okkar í fyrstu umferð undankeppninnar á heimavelli Fram í Úlfarsárdal. Ég vil þakka Fram hversu vel þau tóku í beiðni okkar og sérstaklega hversu fagleg þau voru í allri sinni nálgun á verkefninu.
Ég vona að KA fólk hvaðanæva af landinu fjölmenni í Úlfarsárdal í sumar og hvetji okkar menn áfram og hjálpi okkur þannig að ná markmiði okkar sem er að komast áfram í næstu umferðir í keppninni,” sagði Hjörvar Maronsson, formaður knattspyrnudeildar KA, á heimasíðunni.
Fyrsta umferð undankeppninnar fer fram dagana 13. og 20. júlí og kemur í ljós 20. júní næstkomandi hver andstæðingur KA verður og á hvorri dagsetningunni heimaleikur KA muni fara fram.