Ásdís var best í annarri umferð

Ásdís Karen Halldórsdóttir skýtur að marki FH í leiknum í …
Ásdís Karen Halldórsdóttir skýtur að marki FH í leiknum í 2. umferð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ásdís Karen Halldórsdóttir, sóknartengiliður Valskvenna, var besti leikmaðurinn í annarri umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Ásdís Karen fékk tvö M fyrir frammistöðu sína hjá Morgunblaðinu en hún skoraði bæði mörk Vals í sigrinum á FH á Hlíðarenda á þriðjudagskvöldið, 2:0.

Ásdís er 23 ára gömul og leikur nú sitt sjötta tímabil með meistaraflokki Vals en hún færði sig um set frá Meistaravöllum yfir á Hlíðarenda fyrir tímabilið 2018.

Lék 15 ára með KR

Hún var reyndar lánuð aftur til KR hluta tímabilsins 2019 en Ásdís ólst upp hjá KR í Vesturbænum, lék með yngri flokkum KR og Gróttu/KR, og spilaði fyrst 15 ára gömul með KR í úrvalsdeildinni árið 2015 þegar hún lék níu leiki í deildinni.

Meira um Ásdísi í Morgunblaðinu í dag og þar er birt úrvalslið 2. umferðar Bestu deildar kvenna

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert