Birnir bestur í fimmtu umferðinni

Birnir Snær Ingason hefur farið vel af stað með Víkingum …
Birnir Snær Ingason hefur farið vel af stað með Víkingum á tímabilinu. Ljósmynd/Óttar Geirsson

Birnir Snær Ingason, kantmaður Víkings í Reykjavík, var besti leikmaðurinn í fimmtu umferð Bestu deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Birnir fékk tvö M hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína í leik Víkings og Keflavíkur í fyrrakvöld þar sem Víkingar unnu, 4:1, sinn fimmta sigur í jafnmörgum leikjum í deildinni.

Þar lét Birnir heldur betur að sér kveða því hann lagði upp öll fjögur mörk liðsins. Tvö með hreinum stoðsendingum á samherja, Keflvíkingar skoruðu sjálfsmark eftir sendingu hans inn í markteiginn, og Birnir átti auk þess lykilsendingu í einu markanna.

Birnir er 26 ára gamall og leikur sitt níunda tímabil í röð í efstu deild en hann hefur aldrei spilað utan hennar frá því hann lék fyrst með meistaraflokki Fjölnis 18 ára gamall sumarið 2015.

Meira um Birni í Morgunblaðinu í dag og þar er birt úrvalslið 5. umferðar í Bestu deild karla.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert