„Ég gæti skrifað handritið – við leggjum leikinn upp svipað og við höfum verið að gera, að koma inn af krafti og setja pressu á þá, reyna að spila góðan fótbolta og skapa færi,“ sagði Arnar Grétarsson þjálfari Vals eftir 5:0-sigur á KR að Hlíðarenda í kvöld þegar liðin tókust á í 6. umferð efstu deildar karla í fótbolta
„Mér fannst fyrri hálfleikurinn frábær af okkar hálfu og við hefðum í raun getað skorað fleiri mörk og ég held að KR hafi ekki skapað sér neitt færi. Þeir fá sitt fyrsta færi þegar Atli Sigurjónsson hjá þeim rennur þegar við erum að spila boltanum frá markinu – þá var staðan tvö-núll og ef Atli hefði skorað gæti það hafa breytt leiknum en fljótlega eftir það skoraði Aron þriðja markið okkar og þá var leikurinn búinn.“
Þjálfarinn bjóst við áhlaupi gestanna eftir hlé og var viðbúinn. „Við ræddum í hálfleik að KR-ingar myndu örugglega koma og setja pressu á okkur en töluðum líka um að þá væri mikið pláss fyrir aftan þá og við þyrftum að vera rólegir. Fyrstu tíu mínúturnar eða eitthvað var KR mun meira með boltann án þess að skapa sér neitt og við alltaf fyrir þeim en við aftur og aftur spiluðum svo úr varð geggjaður og fallegur samleikur, svo við hefðum alveg getað bætt við mörkum. Strákarnir fá hrós fyrir að leggja sig alla fram og hlupu alveg fram á síðustu mínútu. Það var lykilatriðið til að vinna leikinn.“