Tindastóll tók á móti FH í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Leikið var á Sauðárkróki og urðu lokatölur 1:1.
Jafnteflið þýðir að Tindastóll er í 8. sæti með tvö stig en FH fer í 9. sæti með eitt stig.
Gestirnir úr Hafnarfirði byrjuðu leikinn betur og höfðu frumkvæðið. Það var því þvert gegn gangi leiksins sem Tindastóll komst yfir. Þá fékk Murielle Tiernan boltann og átti hún góða sendingu inn fyrir FH-vörnina þar sem Aldís María Jóhannsdóttir var mætt, hún fór fram hjá Aldísi Guðlaugsdóttur, markmanni FH, og renndi boltanum í stöngina og inn, 1:0 fyrir Sauðkrækinga.
FH jafnaði leikinn undir lok fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu. Þá var Mackenzie George tekin niður í teignum og réttilega dæmd vítaspyrna. Shaina Ashouri steig upp og setti boltann örugglega fram hjá Monicu Wilhelm í marki Tindastóls. Staðan var 1:1 þegar flautað var til hálfleiks.
Síðari hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu og skiptust liðin á færum. Hvorugt liðið náði hins vegar að skora og endaði leikurinn með jafntefli, 1:1.