ÍBV tók á móti Þór/KA á Hásteinsvelli í dag þegar að liðin spiluðu fyrsta leik þriðju umferðar Bestu deildar kvenna. Leikurinn fór 1:0 fyrir Þór/KA sem þýðir að Eyjakonur eru með þrjú stig eftir þrjá leiki.
„Þetta samræmist ekki okkar markmiðum og við værum til í að vera komnar með fleiri stig. Maður fer alltaf í leiki til að vinna þannig að við værum til í að vera komnar með níu stig eftir þrjá leiki“ sagði Júlíana Sveinsdóttir, varnarmaður ÍBV, sem var skiljanlega svekkt þegar að mbl.is gaf sig á tal við hana eftir leik.
Sandra María skoraði fyrsta og eina mark leiksins á átjándu mínútu og það var svo á 39. mínútu sem að Holly O'Neill, leikmaður ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa gefið Söndru Maríu olnbogaskot í andlitið. Ljóst var að framhaldið yrði ansi krefjandi fyrir heimakonur einum færri.
„Þetta atvik breytti svo sem alveg leiknum en mér fannst við allt í lagi þannig miðað við að vera einum manni færri“
Sýnilegt var á lokamínútum leiksins að Eyjakonur hefðu viljað taka eitt stig út úr þessum leik úr því sem komið var en þær gáfu allt sitt og meira til.
„Já við hefðum viljað fá stig, sérstaklega af því að við vorum manni færri og svo vill maður taka stigin hérna heima“.
En hvorki ÍBV né Þór/KA tókst að koma boltanum í netið í seinni hálfleik og lokatölur urðu 1:0 Þór/KA í vil.
„Mín tilfinning er sú að jafntefli hefði verið sanngjarnast“ sagði Júlíana sem átti góðan leik í vörn ÍBV í dag.
Næsti leikur ÍBV er á móti Þrótti Reykjavík og er hann á heimavelli mánudaginn 15. maí.