„Okkur kom ekkert á óvart í leik Vals og vissum alveg þeir myndu spila,“ sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 5:0 tap gegn Val þegar liðin mættust í kvöld að Hlíðarenda er leikið var í 6. umferð efstu deildar karla í fótbolta.
„Við vorum alveg inni í leiknum fyrsta korterið en þegar Valsarar skora þá missa menn aðeins trúna og Valur tók leikinn yfir. Mér finnst góður kafli hjá okkur í byrjun síðari hálfleiks en svo kom þriðja markið í andlitið á okkur og við gefumst bara upp, þó við værum eitthvað með boltann þá sköpuðum við ekki neitt og vorum ekkert líklegir til að skora.“
KR er sem stendur í 10. sæti deildarinnar með 4 stig eftir 6 leiki og það hlýtur að hafa áhrif á liðið. „Mér fannst vanta sjálfstraustið í liðið eftir ófarir í undanförnum leikjum þá. Mínir menn voru viljugir í upphafi síðari hálfleiks og við fáum færi en þegar svona tækifæri nýtast ekki og þú hefur ekki sjálfstraustið að gera eitthvað úr færunum er það ekki gott. Þriðja markið kom svo í kjölfarið og þá var þetta nánast vonlaust,“ sagði Rúnar.