Sandra hetjan í Vestmannaeyjum

Sandra María Jessen fagnar sigurmarkinu.
Sandra María Jessen fagnar sigurmarkinu. mbl.is/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV tók á móti Þór/KA á Hásteinsvelli í dag í fyrsta leik þriðju umferðar Bestu deildar kvenna. Leikurinn hófst klukkan 14:00 í fínu fótboltaveðri. Enduðu leikar 1:0 fyrir Þór/KA.

Fyrir leikinn voru voru bæði lið með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina og sátu í fimmta og sjötta sætinu.

Það var strax á annarri mínútu sem að Sandra María Jessen var nálægt því að koma sér á blað. Guðný Geirsdóttir, markmaður ÍBV, gerði vel og hélt boltanum.

Þór/KA byrjuðu betur og það var á 18.mínútu sem að Söndru Maríu tókst að koma boltanum yfir línuna. Hulda Ósk Jónsdóttir, kantmaður Þór/KA, með flotta sendingu yfir á Söndru Maríu sem lagði boltanum snyrtilega framhjá Guðnýju í markinu. Staðan 1:0 fyrir Þór/KA.

Bæði lið áttu nokkur færi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en inn vildi boltinn ekki. Það barst hinvegar til tíðinda þegar tæðar 40 mínútur voru liðnar af leiknum. Þá fékk Holly Oneill að líta rauða spjaldið eftir að hafa gefið Söndru Maríu olnbogaskot í andlitið. Dómarinn gaf Holly fyrst gult spjald en eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðadómarann breytti hann í rautt. Réttur dómur þrátt fyrir að hafa vonandi verið óviljaverk hjá Holly. Sandra María lét þetta þó ekki stoppa sig og snéri aftur á völlinn undir lok fyrri hálfleiks. Hún var búin að vera inná vellinum í minna en mínútu þegar að boltinn barst til hennar af hægri kantinum en hún setti boltann framhjá úr fínu færi. Alltaf hætta þar sem að Sandra María er.

Seinni hálfleikur fór hægt af stað en ljóst var að ansi krefjandi hálfleikur var framundan fyrir heimakonur.

Á 51.mínútu tók Amalía Árnadóttir á sig gult spjald til þess að stoppa sókn Eyjakvenna en þá var Olga komin í góðann sjéns. Taktískt brot hjá Amalíu og ÍBV áttu aukaspyrnu og hentugum stað rétt fyrir utan teig. Caeley Lordeman tók aukaspyrnuna og náði fínu skoti en Melissa Lowder í marki Þór/KA nær til boltans og nær að grípa boltann í annarri tilraun.

Á 64.mínútu munaði litlu að Hulda Ósk myndi koma sér á blað. Svakalegt skot frá Huldu með vinstri en skotið endaði í þverslánni og Eyjakonur heppnar þarna.

Eyjakonur stóðu sig príðilega svona miðað við allt og allt og gáfu allt í þetta á loka mínútunum. Það dugði hinsvegar ekki til og lokastaðan 1:0 fyrir Þór/KA.

Sandra María Jessen og Hulda Ósk Jónsdóttir virkilega öflugar í gestaliðinu í dag og Olga Sevcova var allt í öllu í sóknarleik ÍBV. Júlíanna Sveinsdóttir átti einnig góðan leik í vörn heimakvenna.

Þór/KA eru nú komnar með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina á meðan að ÍBV eru einungis með þrjú stig.

ÍBV 0:1 Þór/KA opna loka
90. mín. Iðunn Rán Gunnarsdóttir (Þór/KA) kemur inn á
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert