„Þetta er á góðri leið hjá okkur“

Thelma Sól Óðinsdóttir og Amalía Árnadóttir eigast við í dag.
Thelma Sól Óðinsdóttir og Amalía Árnadóttir eigast við í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Þór/KA sótti ÍBV heim til Vestmannaeyja í dag þar sem að liðin spiluðu fyrsta leik þriðju umferðar Bestu deildar kvenna. Enduðu leikar 1:0 Þór/KA í vil sem þýðir að Þór/KA eru komnar með sex stig eftir þrjá leiki eftir að hafa unnið fyrsta leikinn á móti Stjörnunni og tapað svo á móti Keflavík á heimavelli.

„Mér finnst við byrja [mótið] bara vel en það var mjög svekkjandi að vinna ekki á móti Keflavík. Það er eitthvað sem við ætlum að vinna með og bæta í næstu leikjum. Þetta er á góðri leið hjá okkur“ sagði Hulda Ósk sem var að vonum glöð eftir góðan leik.

Sanda María skoraði fyrsta og eina mark leiksins á átjándu mínútu eftir góða fyrirgjöf frá Huldu Ósk af kantinum. Það var svo á 39.mínútu sem að Holly O'Neill, leikmaður ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa gefið Söndru Maríu olnbogaskot í andlitið.

Mér fannst við geta haldið boltanum meira, mér fannst við hleypa þeim of mikið inn í leikinn. Það er eitthvað sem við hefðum mátt gera betur. Ég var orðinn smá smeyk þarna á tímabili um að þær myndu taka eitt stig en við héldum þessu og tókum þrjú stig. Mér fannst þetta sanngjörn úrslit. Mér fannst við að jafnaði með yfirhöndina í leiknum“.

Þór/KA missti tvo leikmenn út í leiknum á móti Keflavík, annan í upphitun og hinn í hálfleik, og voru ekki með fullan leikmannahóp í leiknum í dag.

„Það kemur alltaf maður í manns stað og þessar ungu stelpur hjá okkur eru að standa sig ótrúlega vel. Svona er þetta bara stundum í fótbolta, leikmenn meiðast og maður verður bara að taka því. Þær eru allar að koma inn aftur núna fljótlega gerum við ráð fyrir“

Ljóst er að liðið á langa leið heim fyrir höndum og töluvert skemmtilegra er að ferðast heim með þrjú stig á bakinu. Næsti leikur liðsins er heimaleikur á móti Breiðabliki þann 15.maí næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert