Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, var svekktur eftir tap á heimavelli gegn KA, 2:1, í Bestu deild karla í knattspyrnu í dag.
„Þetta er bara hundfúlt. Við erum yfir í hálfleik og vorum á löngum köflum að gera mjög vel, svo já, þetta er bara hundfúlt.
Þeir komu grimmari út í seinni hálfleikinn en þeir voru í fyrri hálfleik og á sama tíma komum við passífari út en við vorum í fyrri. Þá vinna þeir sér það inn að vera ofan á á þeim kafla. Ég held að það hafi nokkurn veginn verið það sem gerðist.“
Talsverður pirringur var meðal leikmanna HK út í dómarann í leiknum en þeir vildu oft fá aukaspyrnur en ekkert var dæmt. Þá vildu þeir m.a. fá aukaspyrnu í jöfnunarmarki KA.
„Mér fannst línan sem hann setti undarleg á köflum ef ég á að vera hreinskilinn. Það er kannski ekki mitt að vera að tjá mig eitthvað of mikið um það en þegar það skiptir svona miklu máli, eins og mér finnst bara að Birkir Valur eigi að fá aukaspyrnu þegar þeir jafna leikinn, sérstaklega miðað við aukaspyrnuna sem KA fékk þegar við komumst í gott færi rétt á undan. Ég held að það hafi verið hægt að kvarta yfir línunni á báðum bekkjum.“
HK er með tíu stig eftir sex umferðir í Bestu deildinni en margir spáðu liðinu falli fyrir mót. Þetta verður því að teljast hörku fín byrjun hjá Kópavogsbúum.
„Umtalið fyrir mót var bara eins og það var. Ég hef alltaf sagt það að það búa miklir hæfileikar í liðinu og menn eru tilbúnir að leggja heilan helling á sig í hvert einasta verkefni og undirbúninginn fyrir hvert einasta verkefni.
Tíu stig er bara fínt, þau verða ekki tekin af okkur en við erum einhvern veginn samt að horfa til baka þar sem við fáum eitt stig eða jafnvel færri og höfum sagt að það hefði ekki verið ósanngjarnt að fá fleiri stig. Þetta eru blendnar tilfinningar en auðvitað er ég ánægður með tíu stig eftir sex leiki.
Við erum ekki farnir að setja okkur ný markmið. Við vitum að það er ekki búið að ná markmiðunum sem við settum okkur fyrir mót, tíu stig duga ekki fyrir því þannig að við erum alveg rólegir með slík samtöl í augnablikinu.“