Valur kjöldró KR

Guðmundur Andri Tryggvason kemur Val í 2:0.
Guðmundur Andri Tryggvason kemur Val í 2:0. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Beittari sóknarleikur Valsmanna skilaði tveimur mörkum áður en 25 mínútur voru liðnar þegar KR sótti þá heim að Hlíðarenda í kvöld og leikið var í efstu deild karla í fótbolta, 6. umferð.   

Þrátt fyrir góða viðspyrnu KR eftir hlé dugði það skammt og önnur tvö mörk Vals á fjórum mínútum ásamt aukamarki í lokin gerði útslagið í 5:0 sem skilaði Val upp að hlið Víkinga í efsta sætinu með 15 stig.  Hinsvegar eru Víkingar með betri markatölu og eiga leik til góða gegn ÍBV í Eyjum. 

Bæði lið reyndu að ná undirtökunum og frekar að KR-ingar pressuðu meira svo Frederik markvörður Vals þurfti stundum að sparka frá með sóknarmann KR alveg að komast í hann.  Á móti voru Valsmenn snöggir, spiluðu vel í gegn en tókst ekki að komast með boltann síðasta spölinn.

Á 19. mínútu dró til tíðinda þegar bakvörðurinn framsækni Birkir Már Sævarsson braust upp hægri kantinn og við endalínuna gaf hann fyrir inn í miðjan vítateig þar sem Kristinn Freyr Sigurðsson var búinn að koma sér fyrir og skoraði af öryggi í mitt markið.  Eitthvað svo einfalt og auðvelt.

Fimm mínútum síðar, á 24. mínútu, dró aftur til tíðinda.  Nú vinstra megin þar sem Guðmundur Andri Tryggvason fékk sendingu frá Sigurði Atli Lárussyni, braust í gegn vörn KR, þrumaði á markið,  Simen markmaður KR sló boltann upp í slánna og hann virtist fara inn í markið en Guðmundur Andri tók enga áhættu, hélt sprettinum áfram og skallaði boltann í netið.  Staðan orðin 2:0.

Framan af síðari hálfleik voru KR-ingar heldur beittari og sóttu meira, oft vantaði aðeins uppá að góða skotið kæmi eða nákvæm sending, spiluðu oft langt inní vítateig Vals.  Valsmenn stóðu það af sér og þegar um tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik fóru þeir að pota sér framar.

Siðan á 59. mínútu var boðið uppá endurtekið efni þegar Birkir Már skaust upp hægri kantinn og gaf inní miðjan vítateig þaðan sem Aron Jóhannsson var einn á ferð og þrumaði boltanum undir Simen í marki KR. 

Aðeins þremur mínútum síðar kom aftur mark hjá Val, þegar KR virtist fyrirmunað að koma boltanum út úr teig sínum eftir þunga sókn Vals.  Boltinn barst síðan til hægri þar sem Tryggvi Hrafn Haraldsson þrumaði upp í hægra markhornið en hann hafði komið inná þremur mínútur fyrr.

Undir lokin tóku Valsmenn að bæta sóknarleik sinn aftur og á 86. mínútu var Birkir Már aftur á ferð þegar hann átti snilldarsendingu úr sókn sem virtist ekki neitt voðalega spennandi á Tryggva Hrafn sem afgreiddi boltann laglega yfir markvörð KR.  Aftur eitthvað svo einfalt.

Valur vann fyrir þessu sigri með traustri vörn, sem hleypti gestunum ekki of nálægt og síðan voru Valsmenn snöggir í sóknir sínar, sem margar hverjar voru úthugsaðar og liprar.  Vesturbæingar voru ekkert að dóla á vellinum, tókst sæmilega að hemja sóknir Vals en ekki nógu vel.  Miðjumennirnir unnu sína vinnu en tókst ekki að matreiða færin í sóknarmenn sína. 

Valur 5:0 KR opna loka
90. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert