Vissum að þeir kæmu eins og sært dýr

Birkir Már Sævarsson,
Birkir Már Sævarsson, mbl.is/Hari

„Mér finnst þægilegt að vera bakvörður í þessu liði, eins og í dag þegar það var nægur tími og Adam Ægir tekur athyglina að sér svo ég fæ aðeins meira pláss og það gekk vel í dag,“ sagði Birkir Már Sævarsson varnarmaður Vals sem brá sér að venju í sóknina og lagði upp þrjú mörk auk þess að standa vörnina af myndarskap þegar Valur vann KR 5:0 á Hlíðarenda þegar leikið var í 6. umferð efstu deildar karla í fótbolta í kvöld.

Valur var í góðri stöðu í hálfleik og ætlaði ekki að falla í sömu gryfjuna og í síðasta leik, sagði Birkir Már.  „Við fórum í að halda fengnum hlut gegn Stjörnunni um daginn þegar við urðum alltof varkárir svo við ræddum nú í  hálfleik að við ættum að læra af þeim leik – ekki bara bíða og leyfa mótherjana að koma og skora mark á okkur heldur að koma inn í seinni hálfleik til að drepa allar vonir um slíkt og gerðum það ágætlega held ég. Við vissum að KR-ingar myndu koma af krafti í síðari hálfleikinn eins og sært dýr því það hefur gengið illa hjá þeim.“

Ætluðum að drepa leikinn

Tryggvi Hrafn Haraldsson kom inná á 59. mínútu og þremur mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Vals sem slökkti á KR-ingum en rak svo endahnútinn á góða frammistöðu sína þegar hann innsiglaði sigurinn með öðru marki á 86. mínútu.

Hann var þó meira með hugann við frammistöðu liðsins. „Mér fannst þetta besta frammistaða okkar í sumar, við vorum með leikinn frá fyrstu mínútu og allir voru að gera sitt, vinna fyrir liðið.  Vorum verðskuldað með tveggja marka forystu í hálfleik og þurftum svo að halda fókus í seinni hálfleik. 

Við ætluðum að koma út úr síðari hálfleik, skora þriðja markið og drepa leikinn, sem við gerðum.  Eftir það vörðumst við án þess að fá á okkur færi og skorum svo úr tveimur skyndisóknum. Við höfum unnið fjóra leiki í röð og ætlum að reyna halda okkar striki til að ná Víkingum í efsta sætinu, það er alveg klárt,“ sagði Tryggvi Hrafn eftir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert