Gífurlegt áfall fyrir Árbæinga

Ásgeir Eyþórsson fagnar marki í leik með Fylki í síðasta …
Ásgeir Eyþórsson fagnar marki í leik með Fylki í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásgeir Eyþórsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Fylkis, verður frá keppni um langt skeið eftir að hafa meiðst illa á læri í leik gegn Val í Bestu deildinni í síðustu viku.

„Staðan er þannig að hann er með rifinn lærvöðva og það tekur einhverjar sex til átta vikur, jafnvel upp í tólf vikur.

Það er högg fyrir hann og okkur að missa hann út. Það er bara eins og það er, það er helvíti fúlt,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, í samtali við mbl.is.

Ásgeir er einn allra mikilvægasti leikmaður Árbæjarliðsins og morgunljóst að erfitt verður að fylla skarð hans. Fleiri leikmenn eru á meiðslalista nýliða Fylkis.

„Unnar Steinn [Ingvarsson] er líka meiddur. Hann er með slitna sin undir hælnum þannig að hann er líka frá í sex til átta vikur.

Svo er spurning með Elís [Rafn Björnsson], það eru einhverjar tvær vikur þar. Hann er meiddur á nára. Þetta er meiðslalistinn okkar,“ bætti Rúnar Páll við.

Unnar Steinn og Elís Rafn eru báðir fjölhæfir varnar- og miðjumenn og því töluvert farið að kvarnast úr varnarlínu Fylkismanna.

Kemur brátt frá Bandaríkjunum

Orri Sveinn Stefánsson er eini hreinræktaði leikfæri miðvörðurinn hjá liðinu sem stendur en varnartengiliðurinn Arnór Gauti Jónsson hefur leyst af í stöðunni í undanförnum tveimur leikjum.

Það stendur þó til bóta þar sem von er á uppöldum miðverði úr námi í Bandaríkjunum síðar í vikunni.

„Við erum að fá inn strák, Axel [Mána Guðbjörnsson]. Hann kemur frá Bandaríkjunum núna á föstudaginn. Hann er stór og mikill hafsent þannig að hann hjálpar okkur með þetta. Það er geggjað,“ sagði Rúnar Páll að lokum í samtali við mbl.is.

Axel Máni er tvítugur og á að baki einn leik í efstu deild, fimm leiki í næstefstu deild og þrjá bikarleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert