Hæstánægður með liðið

Ásmundur Arnarsson var sáttur við sitt lið í dag.
Ásmundur Arnarsson var sáttur við sitt lið í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Breiðablik vann Keflavík 6:0 í Bestu deild kvenna í fótbolta í Reykjanesbæ í kvöld. Með sigrinum skaust Breiðablik upp í efsta sæti deildarinnar með sex stig og sterkari markatölu en bæði Þróttur og Valur eiga leik til góða.

„Við áttum góðan leik í dag. Héldum vel í boltann, það var gott flæði á liðinu og við sköpuðum mikið af færum sem skilaði okkur fullt af mörkum. Við lokuðum á þeirra styrkleika þannig að við vorum nánast ekkert að fá á okkur af færum.

Þannig að ég get ekki verið annað en hæstánægður með liðið í dag,” sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, í samtali við mbl.is eftir leik. 

„Það er samt aldrei allt upp á 10 og alltaf hægt að laga eitthvað. Nú þurfum við að nota vikuna vel til að undirbúa okkur fyrir leik fyrir norðan sem er gegn sterku liði Þór/KA,“ sagði Ásmundur að leik loknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert