„Að vera einum manni færri á móti Breiðabliki er mjög erfitt en við hefðum átt að geta haldið þessari stöðu betur. Við erum alveg með nógu gott lið til þess. Það var ömurlegt að missa Júlíu út af.
Við söknuðum líka Mikaelu í kvöld þar sem hún er hafsentinn okkar á meðan að Júlía er ekki hafsent en það kemur maður í manns stað,“ sagði Anita Lind Daníelsdóttir, leikmaður Keflavíkur, í samtali við mbl.is eftir 0:6-tap Keflavíkur gegn Breiðabliki í Bestu deildinni í fótbolta í kvöld.
„Við náðum ekki upp neinu spili í þessum leik og getum í raun ekki tekið neitt með okkur úr honum, en við eigum mjög margt jákvætt úr síðustu tveimur leikjum sem við þurfum bara að taka með okkur í leikinn á móti FH. Þannig að við viljum bara gleyma þessum leik,“ sagði Anita Lind leikmaður Keflavíkur.