Ágúst rekinn frá Stjörnunni

Ágúst Gylfason hefur látið af störfum í Garðabænum og Jökull …
Ágúst Gylfason hefur látið af störfum í Garðabænum og Jökull Elísabetarson tekur við. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Knattspyrnuþjálfaranum Ágústi Gylfasyni hefur verið sagt upp störfum hjá Stjörnunni en hann hefur stýrt karlaliði félagsins frá árinu 2022.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Jökull Elísabetarson, sem var aðstoðarþjálfari Ágústs hjá Stjörnunni, tekur við liðinu af Ágústi.

Sú staða sem er komin upp í byrjun móts þar sem liðið er í bullandi fallbaráttu er hins vegar ekki ásættanleg og því ákveðum við að stíga þetta skref núna,“ segir meðal annars í tilkynningu Garðbæinga.

Ég vil þakka Gústa persónulega fyrir hans framlag og gott og heiðarlegt samstarf sem við höfum átt frá fyrsta degi og óska honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, ennfremur í tilkynningunni.

Stjarnan er með 3 stig í ellefta og næstneðsta sætinu eftir fyrstu sex umferðirnar, stigi frá öruggu sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert