Aldursforsetinn var bestur í 6. umferð

Birkir Már Sævarsson lagði upp þrjú marka Vals gegn KR.
Birkir Már Sævarsson lagði upp þrjú marka Vals gegn KR. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir.

Birkir Már Sævarsson, aldursforseti Bestu deildar karla í fótbolta og hægri bakvörður Vals, var besti leikmaðurinn í sjöttu umferð deildarinnar að mati Morgunblaðsins.

Birkir fékk tvö M hjá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína í leik Vals og KR á sunnudagskvöldið en þar lagði hann upp þrjú markanna þegar Valsmenn unnu stórsigur, 5:0. Öll með sprettum upp hægri kantinn og góðum sendingum á samherja sína.

Birkir Már er 38 ára gamall og hefur átt langan og farsælan feril með Val, Brann í Noregi og Hammarby í Svíþjóð en hann á 431 deildarleik að baki með þessum þremur félögum frá því hann lék fyrst með meistaraflokki Vals árið 2003.

Þar af eru 168 leikir í íslensku úrvalsdeildinni, 168 í þeirri norsku og 84 í þeirri sænsku en auk þess lék Birkir 11 leiki í 1. deild með Val árið 2004. Hann er í 24. sæti yfir leikjahæstu knattspyrnumenn Íslands frá upphafi.

Meira um Birki Má og úrvalslið 6. umferðar má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert