Arnór í þjálfarateymi Hareides

Arnór Snær Guðmundsson lék með ÍA, áður en skórnir fóru …
Arnór Snær Guðmundsson lék með ÍA, áður en skórnir fóru á hilluna. Ljósmynd/Guðmundur Karl

Styrktarþjálfarinn Arnór Snær Guðmundsson verður í teymi Åge Hareides hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta, en hann var einnig í þjálfarateymi Arnars Þórs Viðarssonar.

Greint var frá á heimasíðu Sandefjord í Noregi, en Arnór starfar sem styrktarþjálfari hjá félaginu. Þrátt fyrir að vera aðeins 29 ára gamall, lagði Arnór skóna á hilluna fyrir fjórum árum og ákvað að einbeita sér að öðrum þáttum knattspyrnunnar.

Hann var bæði aðstoðar- og styrktarþjálfari ÍA þegar Jóhannes Karl Guðjónsson stýrði Skagamönnum. Jóhannes Karl er nú aðstoðarþjálfari landsliðsins.

„Ég hef rætt við Åge og hann virðist flottur náungi. Ég er heppinn að fá að halda minni vinnu áfram,“ er haft eftir Arnóri á heimasíðu Sandefjord.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert