Færeyski knattspyrnumaðurinn Patrik Johannesen er með slitið krossband og leikur hann því ekki meira með Íslandsmeisturum Breiðabliks á tímabilinu.
Þetta tilkynnti Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Blika, í samtali við fótbolta.net í dag en Patrik, sem er 27 ára gamall, gekk til liðs við félagið frá Keflavík í vetur.
Leikmaðurinn meiddist gegn Stjörnunni í bestu deildinni í síðustu viku og þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik vegna meiðslanna. Hann fór í myndatöku á mánudaginn þar sem alvarleiki meiðslanna kom í ljós.
Patrik hafði byrjað fimm leiki Keflavíkur í deildinni í sumar og skorað í þeim eitt mark en hann skoraði 12 mörk í 22 leikjum með Keflavík í Bestu deildinni á síðustu leiktíð.