Þróttur úr Reykjavík og Stjarnan mættust í 3. umferð í Bestu deild kvenna í fótbolta í Laugardalnum í kvöld. Leikurinn endaði 1:1.
Stjörnukonur eru nú með fjögur stig eftir þrjá leiki sem þær hafa spilað en þær hafa unnið, tapað og gert jafntefli og sitja í 5. sæti. Þróttarar eru á toppi deildarinnar með sjö stig eftir þrjá leiki.
Þróttur byrjaði leikinn af krafti og hélt boltanum vel. Þær fengu strax færi á fyrstu mínútum leiksins þegar að Mikenna McManus kom með hættulega sendingu fyrir sem endaði í Málfríði Ernu Sigurðardóttir og svo yfir markið.
Eftir um stundarfjórðung fékk Þróttur aukaspyrnu á fínum stað sem Sæunn Björnsdóttir tók. Boltinn endaði á fjærstönginni, þar var Tanya Laryssa Boychuk mætt en hún setti hann rétt fram hjá.
Nokkrum mínútum síðar voru þær aftur komnar í hættulegt færi þegar Jelena Tinna Kujundzic sendi boltann út í miðjan vítateiginn á Ólöfu Sigríði Kristinsdóttir sem setti boltann rétt fram hjá.
Stjarnan varð þó fyrr til að skora en markið kom á 40. mínútu. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sendi boltann í gegn og þar var Jasmín Erla Ingadóttir í hlaupi. Hún var þá komin ein gegn Írisi Dögg Gunnarsdóttur í markinu og setti boltann fram hjá henni og í netið, 1:0 fyrir Stjörnunni.
Í byrjun seinni hálfleiks jafnaði Þróttur metin en markið kom eftir 53 mínútur. Sæunn Björnsdóttir skoraði markið eftir fyrirgjöf frá Ólöfu inn á miðjan vítateiginn. Sæunn var vel staðsett og setti boltann í fjærhornið, 1:1.
Eftir jöfnunarmarkið slokknaði á báðum liðum og leikurinn róaðist mikið niður þar til Freyja Karín Þorvarðardóttir kom inn á hjá Þrótti. Hún kom af bekknum á 68. mínútu og um tíu mínútum síðar var hún komin ein á móti markmanni. Freyja vann boltann framarlega á vellinum og tók á rás að Erin Mcleod í marki Stjörnunnar en skot hennar endaði í stönginni og að lokum í höndunum á Erin.
M-einkunnagjöfin og einkunn dómara verða í Morgunblaðinu á föstudaginn.