Selfoss sótti sitt fyrsta stig í Bestu deild kvenna í sumar þegar liðið gerði 1:1-jafntefli við Val á Hlíðarenda í kvöld.
Leikurinn var frekar daufur en bæði lið fengu þó færi til að skora mörk og stela stigunum þremur. Sif Atladóttir, leikmaður Selfoss, var þó nokkuð sátt með niðurstöðuna og fyrsta stigið í mótinu.
„Stig á töfluna var gott. Það er ekkert hver sem er sem kemur á Hlíðarenda og tekur stig. Þegar við náðum að pressa þær þá gerðum við það mjög vel. Mig langar að hrósa öftustu fimm hjá okkur fyrir það hvernig við tókumst á við framlínuna hjá þeim. Þær eru margar uppi í línu og það er erfitt að eiga við þær.
Við gerðum það vel og við ætlum bara að byggja ofan á þetta. Við fengum alveg færi undir lokin og gátum alveg stolið þessu en við erum bara sáttar með jafnteflið og fyrsta stigið í mótinu. Við fengum færi á móti Íslandsmeisturunum og það gefur okkur bara sjálfstraust fyrir framhaldið. Pabbi talaði alltaf um að ef maður fær færin þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur,“ sagði Sif, en faðir hennar var Atli Eðvaldsson heitinn.
Á 90. mínútu vildu stuðningsmenn Selfoss fá víti þegar boltinn virtist rata í höndina á Málfríði Önnu. „Boltinn fór klárlega í höndina á henni og þetta var bara víti. En mig langar að hrósa dómurum leiksins fyrir dómgæsluna. Þeir dæmdu leikinn mjög vel,” sagði Sif Atladóttir við mbl.is.