Valur og Selfoss skildu jöfn, 1:1, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu á Hlíðarenda í kvöld.
Eftir leikinn eru Valskonur í þriðja sæti með 7 stig og Selfoss í því níunda með eitt stig líkt og FH en með betri markatölu.
Leikurinn fór mjög rólega af stað og áttu bæði lið mjög erfitt með að skapa sér færi. Valur var meira með boltann í fyrri hálfleik en skapaði nánast engin færi. Besta færi fyrri hálfleiks kom á 34. mínútu þegar Þórdís Elva Ágústsdóttir skaut yfir mark Selfoss úr fínu færi.
Selfoss fékk ekkert sem kallast gæti færi til að skora í hálfleiknum. Næst því komst Barbára Sól Gísladóttir þegar hún hljóp upp hægri kantinn í átt að marki Valskvenna en Arna Sif Ásgrímsdóttir tæklaði boltann í horn. Staðan í hálfleik því 0:0 eftir mjög viðburðalítinn fyrri hálfleik.
Síðari hálfleikur hófst með meiri látum en sá fyrri. Þórdís Elva hóf hann á hörkuskoti sem Idun í marki Selfoss varði í horn.
Þremur mínútum síðar brunuðu Valskonur í sókn. Þar áttu bæði Ásdís Karen og Þórdís Elva skot í þverslá sem endaði með að Bryndís Arna Níelsdóttir fylgdi eftir og skoraði. Staðan orðin 1:0 fyrir Val.
Í kjölfarið hófu leikmenn Selfoss að pressa mikið og sóttu hart að marki Vals. Það skilaði árangri því á 58. mínútu fengu leikmenn Selfoss hornspyrnu. Boltinn barst inn í teiginn og skoraði Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir eftir mikla baráttu í vítateig Valskvenna. Eftir þetta róaðist leikurinn aftur og gerðist lítið það sem eftir lifði leiks. Niðurstaðan því jafntefli, 1:1.
M-einkunnagjöfin og einkunn dómara verða í Morgunblaðinu á föstudaginn.